Færsluflokkur: Bloggar
31.12.2008 | 20:36
Fjáröflun!!
Anna hérna..
Frétti fyrir tilviljun að það vantaði fólk í vörutalningu í Europris og hringdi þess vegna í Reykjavík og við erum s.s. að fara í vörutalningu þar!
Fjáröflun verður næsta sunnudag þann 4. jan 2009
mæting er klukkan 9 um morguninn.
Allir að mæta svo!!
..og sjáumst hress á nýju ári!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2008 | 23:06
Ný skemmtinefnd!!
Anna hér!!
Á síðustu mánudagsæfingu var ný skemmtinefnd loksins kosin!!
Úrslitin voru: Tómas með 7 atkvæði
Gréta þar á eftir með 5 atkvæði
Svo er bara að plana eitthvað saman Gréta og Tómas.. en það verður að vera sem allra fyrst eða þá að það bíði þar til í desember. Lokaprófin eru yfirvofandi
Annars er þetta ekkert mál.. bara eitthvað lítið og skemmtilegt, ekkert flókið 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2008 | 12:49
Myndir..
sææælar/ir..! ég var að hent nokkrum myndum frá Alberti inn af þríþrautinni og e-ð aðeins meira..
en hvað segið þið um að við förum að halda svona fund til þess að ákveða hvort við séum að fara út á næsta ári.. og skipuleggja fjáraflannir.. t.d fá einhvern jakka/vesti e-ð til þess að skokka í og fá fyrirtæki til þess að vera með lógó frá sér á því og styrkja okkur þannig.. t.d hægt að fá sundlaugina og fá í staðin að fara frítt í sund.. eða sóma samlokur og í staðin fáum við samlokur þegar við erum að keppa eða bara e-ð.. allt mögulegt ef fyrirtækin geta ekki styrkt okkur með pening..
hvað finnst ykkur..?
og hey.. ég og Halli vorum s.s með atburðinn í þessum mánuði.. eða busunina.. en við gleymdum að kjósa í nýja skemmtinefnd! hvenær eigum við að gera það.. mánudaginn næsta?
kv. Fjóla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2008 | 14:09
Myndir frá busun
Sólveig hér...
Ég var að setja inn myndir frá busuninni ógurlegu sem var í gær (15.okt).
Þær eru reyndar í öfugri röð en ég kann ekki að laga það, njótið!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2008 | 12:04
Allt komið af stað..
Heil og sæl..
Hjartsláttur þessara síðu er e-ð farinn að veikjast verulega..! reynum nú að pumpa hann aðeins upp..!!
Æfingarnar eru byrjaðar og fullt af nýju fólki.. sem er tær snilld.. fótboltaæfing í gær og svo verður sko púlað á morgun..!!
En hey.. verið svo dugleg að mæta í sund á þriðjudögum og fimmtudögum.. Ég, Halli og Dagur fórum í sund í gær og voða kósy.. reyndar talaði ég alveg óstjórnlega mikið.. ! reyndar er það ekkert nýtt.. haha.. En ég held það sé alveg tilvalið að fara í pottinn á fimmtudaginn..
Svo er þríþrautin á laugardaginn.. (kúla, langstökk og 100mhlaup)ég man reyndar ekki hvenær hún byrjar en það er bókað að allir mæta á þetta síðasta móta á vellinum.. og taka eins marga og þeir geta með...!! þetta verður stuð.. ekki gleyma því að það eru veitt verðlaun fyrir hverja greina og allar samanlagðar..
Svo eru það rófurnar sem ég sagði ykkur frá í gær.. hafa einhverjir áhuga á að taka upp rófur í vikunni og laug og sun.. frá 13-18 eða einhvern tíma af því..??
kv. Fjóla bóla..:P

Svona verður Ingunn á laug í kúlunni..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.9.2008 | 00:17
Æfingar byrjaðar:-)
þá er haustfríið á enda og æfingar byrjaðar :-) Í vetur verður sú nýjung hjá deildinni að það verða 3 þjálfarar, þeir heita Albert Þór Magnússon, Sigurður Einarsson og Sigríður Anna Guðjónsdóttir. Við ætlum að taka veturinn með trompi og vera hrikalega dugleg að nýta okkur þennan fjölbreytta þjálfarahóp. Æfingin á morgun verður með óhefðbundnu sniði en hann Brynjar mun verða með körfuboltaæfingu :-) einhvernvegin hef ég það á tilfinningunni að hann Halli eigi eftir að brillera á þeirri æfingu. Á æfinguna í kvöld mættu 5 krakkar á sína fyrstu æfingu með Meistaraflokki. Þetta voru þau Elías, Sölvi og Franziska sem öll eru í 9.bekk í Vallaskóla, Guðlaug sem er í 9.bekk á Stokkseyri og Guðmunda sem er í FSU. Frábært að sjá ný andlit. Einhvernvegin leggst veturinn mjög vel í mig og ég er ótrúlega spennt að takast á við veturinn. Heyrðist það á æfingunni í dag að hópurinn væri að spá í að fara í sund eftir fimmtudagsæfinguna, endilega taka sundföt með á æfingu.
frálsíþróttakveðja
Sigga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2008 | 22:14
Allt komið á hreint! :)
Hæ allir..Anna sem skrifar 
Þetta blogg er fyrir þá sem að eru á leiðinni á MÍ á Sauðárkróki núna þessa helgi.
Lagt verður af stað á morgun kl. 16! Hittast hjá Tíbrá þar sem verður raðað í bíla. Albert og Halli keyra okkur 
Svo verður borðað kvöldmatur einhversstaðar á leiðinni.. líklega í Borgarnesi.
Við gistum í heimahúsi tengdaforeldra Alberts þar sem eru rúm fyrir alla og þarf sem sagt bara að koma með sæng eða svefnpoka.
Svo verður sameiginleg grillveisla liðanna laugardagskvöldið og það kostar 1.500 kr. Annars er það líklega bara bensínkostnaður og svo fyrir mat, sundi o.fl.
Láta fylgja kannski smá glósulista yfir það sem allavega mér dettur í hug:
1. Sæng og kodda eða svefnpoka. (binda vel fyrir pokana ef þið takið með sængur)
2. Keppnisfötin.. selfossgallanna, keppnisbúninginn, hlýjan yfirfatnað..
3. Hversdagsföt
3. Gaddaskó og hlaupaskó
4. Regnföt
5. Sundföt.. og öllu sem því fylgir
6. Síma og pening..
7. Svo er gott að prenta út tímaseðil og merkja sínar greinar og hafa allt á hreinu ;)
8. Svo kannski spil til að stytta okkur stundirnar á kvöldin..
Jæja..ég er örugglega að gleyma einhverju en setjiði það þá bara í komment..
Er ekki allt komið á hreint og allir í brjáluðu stuði fyrir þessa ferð?!! 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2008 | 22:44
MÍ 15 -22 ára
Meistaramót aðalhluti var um helgina og vil ég byrja á því að þakka þeim sem mæti fyrir skemmtilega helgi og óska öllum til hamingju með góðan árangur. En þrátt fyrir það, þá fannst mér vanda alla stemmningu á þetta mót, ég fór t.d ein í sund eftir keppni á laugardag vegna þess að það voru allir svo miklar sultur að þeir nenntu ekki með. Næsta verkefni er MÍ 15 -22 ára á Akureyri eða Sauðárkróki, ég segi að við reynum að gera þetta almennilega. Road trip !!!!! Reynum að fá smá stemmningu í þetta lið, það er engin afsökun að vilja ekki fara vegna þess að þið eruð í lélegu formi eða eitthvað annað ályka, þetta snýst um að vera skemmtilegt og gera sitt besta. Reynum að fara öll saman og gista saman og fara saman í sund og út að borða og meira skemmtilegt ! og audda að æfa alveg sjúklega vel fyrir þetta! Reynum að gera þetta eftir minnilegt og skemmtilegt! Það væri náttúrulega líka æði ef fólki sem ekki er´búið að vera með í sumar hefði áhuga að koma! Þetta er bara gaman ! :) Hvað segiði ?? til í Road trip ?
Agnes =)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.7.2008 | 17:02
meistaramót islands
æja ágæta folk..
Þá er komið að meistaramóti islands , sem verður nuna um helgina. Það er á laugardegi & sunnudegi í reykjavik. Þá er bara spurning hverjir ætla að keppa .. ætlið þið ekki öll að keppa :D ? siðasti skráningarsagur er i kvold, svo þð verðið að lata mig eða mommu vita.. :) vonand sjaumst við sem flest um helgina , svo má auðvitað koma og vera klappstýra :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.7.2008 | 18:05
Skemmtinefndin er með hugmynd (loksins!)
Við hérna Þórhildur og Þórunn Ásta erum (eða vorum) í skemmtinefndinni í síðasta mánuði erum loks komnar með smá hugmynd. Við vorum (aðeins of) lengi að pæla
í hlutunum en vorum að spá í að við hópurinn myndi skreppa saman í sundferð til Hveragerðis, því það er svona aðeins meiri stemming að fara til Hveragerðis heldur en á Selfoss. Eftir sundið gætum við borðað saman ís eða eitthvað annað sem ykkur myndi langa í. Okkur datt þetta svona í hug og vonum að þessi ferð verði farin sem allra fyrst. . . þannig hvernig lýst ykkur á næstu helgi?? Við gætum sameinast í bíla fram og tilbaka og hver kæmi með pening fyrir sig. Þetta er hugmynd og eru allir þeir sem lesa þetta beðnir um að skrifa athugasemd um hvernig ykkur lýst á þetta og hvort þið komist í ferðina eða ekki?
Við minnum svo á, að framundan eru mörg spennandi mót (eða alla vega 3-4 mót í næsta mánuði) og því er mikilvægt að mæta á allar æfingar, sá einmitt bloggið hennar Agnesar hérna fyrir neðan og vona að flestir vilji koma og bæta sig á mótinu þar.
Sjáumst á æfingu k.v. Þórhildur og Þórunn Ásta.
.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)


anna90
guffi




![27092008669[1]](/img/tncache/s100/7c/frjalsar/img/27092008669_1.jpg)
![27092008656[1]](/img/tncache/s100/7c/frjalsar/img/27092008656_1.jpg)


